Nemandinn

  • Kristín María Hreinsdóttir

    Er það hér sem við eigum að skrifa dagbók/blogg
    kv Kristín M Hreinsd
  • Guðrún Björg Halldórsdóttir

    er það ekki á sinni eigin síðu sem maður á að "blogga"?
    ég var að spá hvar það er sem maður getur hjálpað til við að þýða?
  • Hrafnhildur Jónsdottir

    Hæ Hæ ákvað að prófa þetta!! Hvernig gengur í náminu hjá ykkur? Ég er að reyna að fikra mig áfram í þessu og læra á þetta
    Kveðja Hrafnhildur
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    Ég segi það sama og þú, er nú alls engin tölvusnilli og hafði ekki heyrt um næstum því allar þessar síður áður. Eruð þið byrjaðar á námsvefnum sem við eigum að búa til ?
  • Kristín María Hreinsdóttir

    Það er nefnilega eins með netið og annað í þessum heimi, maður veit ekki um helminginn sem er til og er að gerast.
    Ég hef þvælst um á netinu í þó nokkurnn tíma og seigi eins og Sigríður Anna...vissi t.d ekki um Ning og hvað þá Wiki.
    Reyndar um Wikki...orðabókina en ekki þennann möguleika að geta notað þetta sem miðill í kennslu.
    kv Kristín M
  • Kristín María Hreinsdóttir

    Nei ég er ekki birjuð á námsvefnum.
    Búin að ákveða hvað ég tek en ekki komin lengra.
    Er að þvælast um í Ning og þar er margt að skoða.
    Skráði mig í nokkra hópa eins og verkefnið segir til um.
  • Hrafnhildur Jónsdottir

    Nei er ekki byrjuð er svona að átta mig á þessu og er farin að huga að því hvað ég á að taka fyrir. En þetta er að koma hjá mér smátt og smátt
    Eruð þig búin með öll verkfnin sem á að skila 18. okt??
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    Á ekki bara að skila einu verkefni 18.okt. þ.e ning og facebook verkefnið . Eigum við að skila fleiri verkefnum þá ?
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    Það er eitt og sama verkefnið, eða það held ég, umfjöllunin um fræðilegu greinina er ca helmingur af þessu 3 síðna verkefni
  • Hrafnhildur Jónsdottir

    Það og svo umfjöllun um fræðigrein um félagsnet er það ekki er ég að misskilja einhvað??
  • Kristín María Hreinsdóttir

    Er að velta því fyrir mér hvort maður geti sráð sig í fleiri Ning hópa hérna á Utmidlun. Utann við Nemandann og svo sjálfann Utmidlunar hópinn.
    Síðan hvar fynnið þið fræðigreinar um félagsnet.
    Er það á sértökum stað eða bara í leyt á netinu.
  • Sara Sædal Andrésdóttir

    Hæhæ!
    Í verkefnalýsingunni stendur að skrá sig eigi í a.m.k. 3 ningsamfélög. Ég er ekki alveg að ná þeim punkti... Er e-r með þetta á hreinu?
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    ferð bara á ning.com og velur einhverja 3 hópa og skráir þig í þá
  • Sara Sædal Andrésdóttir

    Já já eeeen sniðugt! Takk fyrir það :)
  • Hrafnhildur Jónsdottir

    veit einhver hvað maður finnur fræðgrein um félagsnet? búin að leita en finn ekkert áhugavert??
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    ég googlaði "rafræn skjöl" og setti síðan inn leitarorð, facebook og social network. Prófaðu þessa slóð, hlýtur að finna eitthvað. Annars er ég líka búin að eyða fleiri klukkutímum að leita að fræðigrein
    http://online.sagepub.com/cgi/searchresults?qbe=spnms;10/3/393&journalcode=spnms&minscore=5000
  • Kristín María Hreinsdóttir

    Er eitthvað nýtt að gerast hérna á Ning/Hópur.
    Eruð þið farnar að þýða t.d Ning yfir á ástkæra ilhhýra?
    Ég hef verið smá fjarverandi vegna anna á öðrum stöðum.
    kv Kristín M
  • Sigríður Anna Guðjónsdóttir

    Mig minnir nú að hún hafi verið hætt við að láta okkur þýða ning, að það hafi ekki verið hægt.