Upplýsingatækni og miðlun í menntun
Samfélag þeirra sem stunda nám, kennslu og rannsóknir á sviðinu
Time: February 7, 2012 from 1pm to 4pm
Location: Bratti, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Street: v/Stakkahlíð
City/Town: Reykjavik
Website or Map: http://www.saft.is
Event Type: málþing
Organized By: Guðberg K. Jónsson
Latest Activity: Feb 2, 2012
Export to Outlook or iCal (.ics)
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 7. febrúar 2012
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman. Áhersla verður lögð á að kynslóðir miðli af þekkingu sinni og reynslu milli kynslóða, en þannig má stuðla að jákvæðri og öruggri notkun Netsins.
Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe netverkið (www.saferinternet.org), og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ungt fólk og fullorðna til þess að vekja athygli á og ræða um netið. Netverkið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu (www.saft.is ) og sýnd í sjónvarpi næstu daga.
Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar-, og mennta- og menningarmála, Póst og fjarskiptastofnun, Microsoft Íslandi og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla, og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.
Dagskrá:
Málþingið verður sent beint út á netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is).
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á saft@saft.is, en þingið er öllum opið án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.
Upplýsingatækni og miðlun við Menntavísindasvið HÍ (áður tölvu- og upplýsingatækni KHÍ): Fyrir nemendur, kennara og rannsakendur.
Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Linda Agnars Sep 20, 2018. 5 Replies 0 Likes
Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Steinunn Inga Nov 12, 2014. 6 Replies 0 Likes
Started by Gustavo Manuel Pérez Déniz in Uncategorized Feb 3, 2011. 0 Replies 0 Likes
2 members
14 members
© 2025 Created by Sólveig Jakobsdóttir. Powered by
RSVP for Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012 to add comments!
Join Upplýsingatækni og miðlun í menntun