Upplýsingatækni og miðlun í menntun

Samfélag þeirra sem stunda nám, kennslu og rannsóknir á sviðinu

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 11. febrúar 2014

Event Details

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 11. febrúar 2014

Time: February 11, 2014 from 12pm to 4pm
Location: Háskóli Íslands - Menntavísindasvið
Website or Map: https://www.facebook.com/even…
Event Type: ráðstefna, -, málstofur
Organized By: Guðberg K. Jónsson
Latest Activity: Feb 10, 2014

Export to Outlook or iCal (.ics)

Event Description

Mennta- og menningarmálaráðuneytið, innanríkisráðuneytið, velferðarráðuneytið, Póst og fjarskiptastofnun, Menntavísindasvið HÍ og SAFT standa fyrir ráðstefnu um Internetið á alþjóðlega netöryggisdaginn, þann 11. febrúar 2014 við Menntavísindasvið HÍ. 

Ekkert þátttökugjald 

Skráning á Facebook eða með póst á saft@saft.is 

 

12.00 – 12.15  Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra

12.15 – 12.25  Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra

12.25 – 12.35  Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður menningar- og menntamálaráðherra

12.35 – 13.00  Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar: Af hverju þarf samráðsvettvang um stefnumótun um málefni internetsins? 

13.00 – 13.25  Almar M. Halldórsson, verkefnisstjóri PISA hjá Námsmatsstofnun – Læsi íslenskra nemenda  

13.25 – 13.40  Bjartur Thorlacius, ungmennaráð SAFT: Tjáning gegn hatri. 

13.40 - 14.00 Kaffihlé 

14.00 - 16.00 Málstofur 

  • Ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu – stofa H201 

Hvernig tryggjum við öryggi fólks á netinu og hvetjum til ábyrgrar notkunar nýrrar tækni? Hvert er hlutverk foreldra, skóla og samfélagsins? Hvaða reglur gilda um Internetið þegar tjáningarfrelsið er annars vegar? 

Málstofustjórar eru Ingimar Karl Helgason, blaðamaður og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdarstjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands.  

  • Varðveisla persónuupplýsinga – stofa H202 

Kröfur um trausta innviði fjarskipta og öryggi fjarskiptakerfa verða stöðugt meiri, í takt við síaukna og fjölbreyttari notkun Internetsins sem vinnutækis, þjónustuleiðar og afþreyingar í daglegu lífi. Rætt er um hvaða ábyrgð stjórnvöld, markaðsaðilar og almennir notendur hafa á þessu sviði. 

Málstofustjóri er Arnaldur Axfjörð og Jón Kristinn Ragnarsson. 

  • Hvernig byggjum við upp „stafræna borgaravitund“?   – STOFA H203

Í fyrri hluta málstofunnar (45 mín) verður fjallað um nýjar tegundir læsis og dæmi tekin um þróun erlendis í stefnu og aðgerðum skóla og menntayfirvalda sem tengjast uppbyggingu og eflingu stafrænnar borgaravitundar með nemendum (Sólveig Jakobsdóttir). Þá fjallar Elínborg Siggeirsdóttir um netöryggisfundi með nemendum og foreldrum í Hörðuvallaskóla þar sem kynntar eru hugmyndir um ábyrga netborgara, örugga netnotkun og leiðir til að efla jákvæða sjálfsvitund nemenda á netinu. Að lokum ræðir Salvör Gissurardóttir um miðlun á myndum og myndrænu efni og mikilvæg atriði sem kennarar og nemendur þurfa að hafa í huga varðandi vinsæla myndmiðla sem eru tengdir neti í gegnum síma (t.d. snapchat, vine, Instagram) og lög og vinnureglur varðandi slíka myndræna miðlun. 

16.00 - 16.30 Veitingar

  • Streymi fyrir dagskrá 12.00-14.00 er hér.
  • Streymi fyrir málstofur má finna á heimasíðu SAFT.

Comment Wall

Comment

RSVP for Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 11. febrúar 2014 to add comments!

Join Upplýsingatækni og miðlun í menntun

Attending (2)

Upplýsingatækni og miðlun við Menntavísindasvið HÍ (áður tölvu- og upplýsingatækni KHÍ): Fyrir nemendur, kennara og rannsakendur.

Forum

Kynningar

Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Linda Agnars Sep 20, 2018. 5 Replies

Nemar á inngangsnámskeiði í UT í menntun og skólaþróun

Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Steinunn Inga Nov 12, 2014. 6 Replies

Social Networks & Intercultural Competencies.

Started by Gustavo Manuel Pérez Déniz in Uncategorized Feb 3, 2011. 0 Replies

Members

© 2024   Created by Sólveig Jakobsdóttir.   Powered by

Badges  |  Report an Issue  |  Terms of Service