Upplýsingatækni og miðlun í menntun

Samfélag þeirra sem stunda nám, kennslu og rannsóknir á sviðinu

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012

Event Details

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012

Time: February 7, 2012 from 1pm to 4pm
Location: Bratti, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Street: v/Stakkahlíð
City/Town: Reykjavik
Website or Map: http://www.saft.is
Event Type: málþing
Organized By: Guðberg K. Jónsson
Latest Activity: Feb 2, 2012

Export to Outlook or iCal (.ics)

Event Description

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 7. febrúar 2012

 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Tengjum kynslóðir” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag þar sem til umfjöllunar verða ýmis verkefni þar sem tæknin tengir kynslóðir saman. Áhersla verður lögð á að kynslóðir miðli af þekkingu sinni og reynslu milli kynslóða, en þannig má stuðla að jákvæðri og öruggri notkun Netsins.

 

Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe netverkið (www.saferinternet.org), og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ungt fólk og fullorðna til þess að vekja athygli á og ræða um netið. Netverkið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu (www.saft.is ) og sýnd í sjónvarpi næstu daga.

 

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Bratta, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar-, og mennta- og menningarmála, Póst og fjarskiptastofnun, Microsoft Íslandi  og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdarstjóri Heimilis og skóla, og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.

 

Dagskrá:

  • 13.00 - Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, setur málþingið
  • 13.10 - Ari Eldjárn, uppistandari: Hvernig er líf án Netsins og hvernig verður Netið í framtíðinni?
  • 13.25 - Diljá Helgadóttir, ungmennaráði SAFT: Áhrif internetsins á samskipti fólks
  • 13.45 - Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg: Ungir uppfæra eldri borgara
  • 14.05 - Salvör Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið HÍ: Félagslegur jöfnuður og Internetið
  • 14.25 - Kaffi
  • 14.45 - Stefán Jökulsson, lektor í kennslufræði, Menntavísindasviði HÍ: Hvað er af sem áður var? Um kynslóðamun í stafrænum heimi
  • 15.05 - Einar Skúlason, kynningarstjóri Fréttablaðsins og Vísis, Markaðssviði: Siðferði, fjölmiðlar og Netið – fjölmiðlafólk miðlar til grunnskólanema
  • 15.25 - Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskiptasviðs Advania: Með tilkomu öflugra leitarvéla og samfélagsmiðla er einkalíf þitt og lífshlaup eins og opin bók. Friðhelgi fortíðar er fyrir bí. En skiptir það máli í nútímanum og hver er hættan í framtíðinni?
  • 15.45 - Pallborðsumræður
  • 16.00 - Veitingar

 

Málþingið verður sent beint út á netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is).

 

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á saft@saft.is, en þingið er öllum opið án endurgjalds á meðan húsrúm leyfir.

Comment Wall

Comment

RSVP for Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2012 to add comments!

Join Upplýsingatækni og miðlun í menntun

Attending (1)

Upplýsingatækni og miðlun við Menntavísindasvið HÍ (áður tölvu- og upplýsingatækni KHÍ): Fyrir nemendur, kennara og rannsakendur.

Forum

Kynningar

Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Linda Agnars Sep 20, 2018. 5 Replies

Nemar á inngangsnámskeiði í UT í menntun og skólaþróun

Started by Sólveig Jakobsdóttir in Uncategorized. Last reply by Steinunn Inga Nov 12, 2014. 6 Replies

Social Networks & Intercultural Competencies.

Started by Gustavo Manuel Pérez Déniz in Uncategorized Feb 3, 2011. 0 Replies

Members

© 2024   Created by Sólveig Jakobsdóttir.   Powered by

Badges  |  Report an Issue  |  Terms of Service